Svar við herferðinni „Já til að sjá“

Viltu sjá samninginn? Hann er ekki falinn.

„SJÁ“ vill að þú sjáir samning áður en þú gerir upp hug þinn. Það sem skiptir mestu máli getur þú hinsvegar séð strax, það liggur þegar fyrir, ekki í texta sem á eftir að semja.

Þetta liggur þegar fyrir:

  1. 0,09%

    Atkvæðavægi Íslands í ráðherraráði ESB.

    StaðfestÍbúahlutfall · aukinn meirihluti

  2. 6 af 720

    Þingsæti Íslands á Evrópuþinginu.

    RökstuttSætaskipan Evrópuþingsins

  3. Einkavald

    Verndun fiskistofna fellur undir einkavald ESB, ekki sameiginlegt vald. Ísland fengi þar ekkert neitunarvald.

    StaðfestTFEU 3. gr. (1)(d)

  4. 0 varanlegar undanþágur frá CFP

    Ekkert aðildarríki hefur varanlega undanþágu frá sameiginlegu sjávarútvegsstefnunni (CFP).

    Rökstutt

  5. 20–25%

    Hlutfall ESB-gerða sem Ísland hefur tekið upp gegnum EES (allar gerðir, 2014–2016). Talan „~75%“ sem aðildarsinnar nefna miðar við annan nefnara og er ekki sambærileg.

    RökstuttEES-skýrsla nr. 15, 2018

Staðfest = sannreynt · Rökstutt = rökstudd ályktun · Mat = áætlun

Lesa heimildirnar á evropumalin.is →

Þetta er skopstæling og andsvar. Síðan er ekki á vegum herferðarinnar „Já til að sjá“.